Sollasemgeturallt
Myndasíða
Hafið samband

Verið velkomin á þessa síðu sem er fyrsta tilraun mín til heimasíðugerðar.

kornet.jpg

hluti Háskólakórsins í fucking Malmö

Hér er ætlunin að koma einhverjum misvitrænum upplýsingum á framfæri.
Ég er Solla og ef ég á að lýsa mér í stuttu máli er ég rúmlega tvítug (nei ég er ekki hálfþrítug, samþykki það sko ekki), sálfræðimenntuð en mjög skeptísk á allt sem heitir sálfræði. Hestar og klassísk tónlist eiga hug minn allan (eða allega svona 60 prósent), drykkja og skemmtun kemur í næsta flokk og þá sérstaklega í samneyti við félaga úr ÁDÍ sem þó eru að týna tölunni hér á Íslandi og verið er að stofna útibú í hinum ýmsu Evrópulöndum.
 
Þessi síða á líklega eftir að breyta og bætast með tímanum eftir því sem ég fatta meira hvernig á að gera þetta allt saman, en ætlunin er að setja inn einhvers konar dagbókarhugrenningarfærslur.

Minn stærsti draumur: að flytja að heima.... aftur

What's New? eða eins og ég kýs að kalla það Hvað er nýtt?

Jæja, þá er kominn 6. september. Allir líklegast löngu búnir að gefast upp á því að eitthvað gerist á þessari heimasíðu enda hef ég ekki snert á henni síðan ég setti hana upp enda síðasta verk mitt fyrir slysið.
But I'm back..
 
Kristín og Vigdís eiga afmæli í dag og óska ég þeim hér með til hamingju.
 
-------
 
Hér á víst að vera eitthvað svona uppdate um það sem ég er að gera... ætli þetta sé þá dagbókarformið..hlýtur að vera, ekki er það undir my pets sem ég af einhverjum ástæðum setti inn sem síðu hjá mér :s

net1.jpg
Leiðaramyndin mín

net2.jpg

Veiti sálfræðiþjónustu gegn bjórgreiðslu, hafið samband ef þið hafið áhuga. Ábyrgist ekki lækningu en skemmtilegu fylleríi.