hosted by tripod
Tell me when this page is updated
sollsoll

11.11.05

Veruleikaþættir, veruleikafyrring. Eiga Rob og Amber skilið að vinna aðra milljón?
ædóntnó, það eina sem ég veit að ég er algerlega húkkt á þessa blessuðu þætti. Mánudagar eru Survivor, þriðjudagar Amazing Race. miðvikudagar antm, fimmtudagar House, föstudagar Idol.
Sjúkt líferni, sjúkt sjúkt sjúkt.

Hef heitið mér því að eiga tvö sjónvarpslaus kvöld í viku. Gera eitthvað annað. fara í sund, göngutúr.. gera hið ótrúlega og hitta vini!?!?! Hér með gefst öllum vinum leyfi til að hringja í mig og draga mig út úr húsi.

Og já, keypti mér bíl um daginn. jeppa, flottan, dáldið dýran en ekki fok, keypti líka jólaskraut í Ikea, langar í æðislega fínan bol í Oasis sem kostar allt of mikið. Langar í jólabústað en þetta eru atvinnurekandajól og því margir sem ekki vilja eða geta komist.



Home